Fotbolti.net
13.10.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Heimta bætur eftir að leikmaður meiddist illa - Sjáðu tæklinguna

Heimta bætur eftir að leikmaður meiddist illa - Sjáðu tæklinguna
Canon

Mynd: EPA

Lille íhugar að höfða mál gegn dómarasambandi frönsku deildarinnar eftir að varnarmaðurinn Tiago Santos sleit krossband í leik liðsins gegn Le Havre um helgina.

Atvikið átti sér stað eftir um stundafjórðung en sá brotlegi var ekki spjaldaður.
„Kringumstæður atviksins og skortur á refsingum vekja upp alvarlegar spurningar hjá félaginu," sagði í yfirlýsingu frá Lille.

„LOSC kannar allar mögulegar lagalegar leiðir og áskilur sér rétt til að grípa til allra nauðsynlegra lagalegra aðgerða til að fá bætur. Það mun styðja Tiago í öllum skrefum sem hann ákveður að grípa til til að verja réttindi sín.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.