13.10.26 - 19:01
Brynjar Ingi Erluson
Íslendingaliðið aftur upp í efstu deild

Ísak Andri og félagar í Norrköping eru komnir aftur upp í efstu deild

Mynd: IFK Norrköping

Sænska félagið Norrköping hefur tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni á ný eftir aðeins árs fjarveru.
Norrköping féll óvænt úr sænsku úrvalsdeildinni á síðasta ári, en félagið er eitt það sigursælasta í sögu sænska fótboltans.
Stefnan var skýr frá upphafi, að koma liðinu aftur upp í deild þeirra bestu, og hefur það nú tekist með sannfærandi hætti.
Norrköping tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni á ný með stórsigri á Sundsvall, 4-0, í kvöld, en enn eru fjórar umferðir eftir af tímabilinu.
Ísak Andri Sigurgeirsson er á mála hjá Norrköping en hann sat allan leikinn á varamannabekknum.
Fyrrum landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason hefur verið í þjálfarateymi félagsins en Magni Fannberg gegndi einnig stöðu yfirmanns íþróttamála þar til hann lét af störfum undir lok síðasta árs.
Norrköping er á toppi sænsku B-deildarinnar með 58 stig og getur tryggt sér meistaratitilinn í næstu umferð.

IFK Norrköping är tillbaka i allsvenskan?????????? https://t.co/BNpIjd3l7w
— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) October 13, 2026