13.10.26 - 19:16
Brynjar Ingi Erluson
Markvörðurinn fékk frí eftir óhugnanlegt innbrot

Peter Gulacsi

Mynd: EPA

Peter Gulacsi

Mynd: EPA
Ungverski landsliðsmarkvörðurinn Peter Gulacsi er ekki með Villarreal gegn Napoli í Meistaradeildinni í kvöld eftir að brotist var inn á heimili hans á meðan hann og fjölskylda hans voru þar stödd.
Ránið átti sér stað í morgun en Gulacsi og fjölskylda hans voru heima þegar þjófarnir brutust inn á heimili þeirra.
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum sakaði engan líkamlega en atvikið tók mikið á fjölskylduna.
Af þeim sökum var ákveðið að Gulacsi fengi frí frá leik Villarreal gegn Napoli í kvöld.
Þetta er því miður ekki einsdæmi á Spáni en Karl Toko-Ekambi og André-Frank Zambo Anguissa lentu báðir í innbrotum á meðan þeir voru á mála hjá Villarreal. Fleiri fótboltamenn víðs vegar um heim hafa einnig orðið fyrir sambærilegum atvikum.

???? Peter Gulacsi, portero del Villarreal CF, ha sufrido esta madrugada un robo a mano armada en su domicilio mientras se encontraba junto a su familia
— El Partidazo de COPE (@partidazocope) October 13, 2026
???? Afortunadamente, ninguno de los presentes resultó herido
? Debido al impacto de esta situación, el futbolista NO estará DISPONIBLE para el partido de esta noche
???? #PartidazoCOPE