Fotbolti.net
13.10.26 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson

Olise er ekki til sölu - „Bayern er ekki félag sem þarf að selja leikmenn“

Michael Olise

Michael Olise

Canon

Mynd: EPA

Herbert Hainer, forseti Bayern München, segir félagið ekki hafa minnsta áhuga á að selja franska landsliðsmanninn Michael Olise.
Real Madrid sýndi Olise mikinn áhuga í sumar en Bayern hafnaði öllum fyrirspurnum um leikmanninn.

„Bayern er ekki félag sem þarf að selja leikmenn. Við erum í sterkri stöðu og tökum okkar ákvarðanir út frá því. Michael Olise er samningsbundinn okkur til ársins 2029,“ sagði Hainer.

Bayern vill halda Olise til langs tíma og vonast Hainer til þess að Frakkinn framlengi samning sinn við félagið.

„Ég vona að hann framlengi samning sinn við félagið á einhverjum tímapunkti. Hvort sem það er Real Madrid eða eitthvert annað félag sem reynir að fá hann þá vitum við vel hvernig við eigum að bregðast við. Bayern hefur upp á margt að bjóða,“ sagði Hainer við BILD TV.

Olise er einn eftirsóttasti leikmaður heims um þessar mundir en Real Madrid er ekki eina stórliðið sem hefur augastað á honum. Liverpool og Paris Saint-Germain eru einnig sögð hafa mikinn áhuga á Frakkanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.