Fotbolti.net
13.10.26 - 13:10
Kári Snorrason

Óskar ræðir fyrirkomulagið - „Væri helst til í tíu liða deild og fjórfalda umferð“

Hávær umræða hefur verið síðustu misseri um mögulegar breytingar á fyrirkomulaginu.

Hávær umræða hefur verið síðustu misseri um mögulegar breytingar á fyrirkomulaginu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, er hluti af spretthóp sem fundar um þessar mundir um keppnisfyrirkomulag í Bestu deild karla.

Hávær umræða hefur verið síðustu misseri um mögulegar breytingar á fyrirkomulaginu og hugsanlega fjölgun í fjórtán lið í Bestu deildinni.

Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn eftir sigur KR á Fram síðastliðinn laugardag og var hann spurður um gang mála hjá hópnum og eigin afstöðu.
KSÍ og ÍTF setja saman hópa sem ræða fyrirkomulagið í Bestu deildunum
TENGT EFNI

KSÍ og ÍTF setja saman hópa sem ræða fyrirkomulagið í Bestu deildunum

Helst til í tíu liða deild og fjórfalda umferð
„Þessi vinna er auðvitað bara komin mjög stutt á veg. Það eru margar skoðanir. Ég væri auðvitað helst til í bara tíu liða deild með fjórfaldri umferð, en ég veit að það gerist aldrei. Miðað við það að félögin ákveða sjálf á ársþingi KSÍ hvort að hversu mörg lið eru í þessum deildum þá verður það aldrei samþykkt,“ sagði Óskar en tíu liða deild með fjórfaldri umferð myndi þýða 36 leikja mót.

„En mér finnst þessi úrslitakeppni ekki slæm. Ég væri til í að spila tvöfalda umferð. Það er auðvitað skrýtið að vera í þeirri stöðu að eftir 22 umferðir og þá ertu svona að spá í hvort þú lendir á móti þessum á grasi eða þessum á heimavelli? Það skiptir máli,“ sagði Óskar jafnframt.

Fyrsta skipti grundvöllur fyrir 14 liða deild
Óskar nefnir jafnframt að sterk Lengjudeild skapi grundvöll fyrir fjölgun liða. „Miðað við hvernig efri hluti Lengjudeildarinnar var að spilast í sumar að þá finnst mér kannski í fyrsta skipti vera grundvöllur fyrir því að ræða að fara í 14 liða deild.

Því það er alveg ljóst að Fylkir, HK, og Njarðvík eru að setja mikið í liðin sín og örugglega ekkert mikið minna heldur en kannski neðstu liðin í Bestu deildinni,“
sagði Óskar.

Gefur Evrópuliðum aukið svigrúm
Óskar segir þó aukið svigrúm vera fyrir lið í Evrópukeppnum ef farið er í 14 liða deild í stað tvískiptingarinnar.

„Eins og fyrirkomulagið er núna er pressa að þurfa að klára 22 leikja mót fyrir ákveðinn tíma. Það er ekkert hægt að fresta leikjum endalaust. Ef þetta væri heil deild, 26 leikir, þá gæfi það svigrúm til að létta undir með þessum liðum eins og Víkingar í dag, sem eru að berjast við að fara lengra heldur en bara í forkeppni í Evrópu,“ sagði Óskar að lokum.
Rúnar Kristinsson hefur rætt opinskátt um skoðanir sínar á núverandi fyrirkomulagi.

Rúnar Kristinsson hefur rætt opinskátt um skoðanir sínar á núverandi fyrirkomulagi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Börkur Edvardsson leiðir spretthópinn.

Börkur Edvardsson leiðir spretthópinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Alveg ljóst að Fylkir, HK, og Njarðvík eru að setja mikið í liðin sín“

„Alveg ljóst að Fylkir, HK, og Njarðvík eru að setja mikið í liðin sín“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.