þri 14. janúar 2020 06:00
Aksentije Milisic
Fabianski meiddur á ný
Mynd: Getty Images
Lukasz Fabianski, markvörður West Ham, verður frá í nokkrar vikur vegna meiðsla sem hann hlaut í tapleiknum gegn Sheffield United á föstudeginum síðasta.

Fabianski meiddist á mjöð en meiðslin eru á svipuðum stað og þau sem héldu honum frá vellinum í þrjá mánuði fyrr á þessu tímabili.

Fabianski hefur meiðst fjórum sinnum frá því hann þurfti að fara í aðgerð en góðu fréttirnar fyrir West Ham eru þær að þetta er ekki eins alvarleg meiðsli og þau síðustu.

West Ham hefur verið í basli með markvarðarstöðuna á þessu tímabili og hafa staðgenglar Fabianski ekki staðið sig næginlega vel í fjarveru hans.

West Ham, undir stjórn David Moyes, mætir Everton í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn kemur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner