Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 14. janúar 2022 22:37
Victor Pálsson
Einkunnir Brighton og Crystal Palace: Butland bestur
Mynd: EPA
Það fór fram einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en leikið var á heimavelli Brighton, Amex vellinum.

Crystal Palace kom í heimsókn og tók forystuna með marki frá Conor Gallagher í seinni hálfleiknum.

Staðan var 1-0 þar til á 87. mínútu er Joachim Andersen skoraði sjálfsmark fyrir Palace til að tryggja sigur.

Jack Butland hafði áður bjargað gestunum með því að verja vítaspyrnu Pascal Gross í fyrri hálfleik.

Hér má sjá einkunnagjöf Sky Sports í kvöld.

Brighton: Sanchez (7), Veltman (7), Burn (7), Webster (7), Moder (7), Lallana (6), Gross (5), Cucurella (7), Mac Allister (7), Maupay (7), Trossard (7).

Varamenn: Lamptey (6), Welbeck (6), March (7).

Crystal Palace: Butland (8), Ward (6), Guehi (6), Andersen (7), Mitchell (6), Hughes (6), Schlupp (7), Gallagher (7), Olise (6), Edouard (6), Eze (6).

Varamenn: Milivojevic (6), Mateta (6)

Athugasemdir
banner
banner