Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. febrúar 2021 17:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna: Öruggur sigur Þórs/KA á Stólunum
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór/KA 5 - 1 Tindastóll
1-0 Hulda Ósk Jónsdóttir ('1)
2-0 Karen María Sigurgeirsdóttir ('2)
3-0 María Catharina Ólafsd. Gros ('20)
3-1 Murielle Tiernan ('29)
4-1 Sjálfsmark ('75)
5-1 Margrét Árnadóttir ('83)
5-2 Jacqueline Altschuld ('90)

Þór/KA vann sannfærandi sigur gegn Tindastól í A-deild Lengjubikars kvenna í Boganum á Akureyri í dag.

Þór/KA setti tóninn strax í leiknum og skoraði tvö mörk á fyrstu tveimur mínútum leiksins. Svo kom þriðja markið á 20. mínútu og róðurinn erfiður fyrir Tindastól.

Murielle Tiernan minnkaði þó muninn fyrir Stólana og var staðan 3-1 í leikhlé. Tindastóll komst hins vegar ekki nær. Þór/KA bætti við tveimur mörkum til viðbótar í síðari hálfleik. Gestirnir náðu aðeins að klóra í bakkann undir lokin og lokatölur 5-2. Þessi lið munu bæði spila í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Þetta var fyrsti leikurinn hjá báðum liðum í Lengjubikarnum en það fór einn annar leikur fram í dag í Lengjubikar kvenna. Þróttur hafði betur gegn KR.
Athugasemdir
banner
banner
banner