Fotbolti.net
14.04.15 - 10:10
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Man Utd litað

Carrick er afar mikilvægur fyrir Man Utd.

Carrick er afar mikilvægur fyrir Man Utd.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United átti frábæran leik gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um helgina og fagnaði 4-2 sigri.

United á alls sex leikmenn í úrvalsliði vikunnar að þessu sinni en það er sótt til Goal.com í dag.


David de Gea rétt nær að vinna Thibaut Courtois í baráttunni um stöðuna í markinu en Belginn átti frábæran leik þegar Chelsea vann QPR. De Gea gerði líka góða hluti á ansi mikilvægum augnablikum á Old Trafford.

Antonio Valencia er í hægri bakverðinum en hann sýndi afar kraftmikla frammistöðu gegn City og hefur verið frábær að undanförnu. Nedum Onuoha var hrikalega öflugur í vörn QPR og hinu megin átti John Terry mjög góðan leik.

Daley Blind var öryggið uppmálað fyrir Manchester United og náði vel saman við Ashley Young sem einnig er í liðinu. Yannick Bolasie varð fyrsti leikmaður Crystal Palace til að skora þrennu í ensku úrvalsdeildinni þegar Palace vann öruggan sigur gegn Sunderland.

Michael Carrick var akkerið á miðju United gegn City og Marouane Fellaini heldur áfram að blómstra og nýtir líkamlegan styrk sinn til hins ítrasta.

Glenn Murray heldur áfram að gera ljómandi fína hluti fyrir Crystal Palace og skoraði sjötta mark sitt í sex leikjum. Síðast en ekki síst. Christian Benteke tryggði Aston Villa sigur gegn Tottenham en Benteke er á eldi um þessar mundir.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.