Jón Þór: Ég segi þér það ekki
Auglýsing

Jón Þór Hauksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, er spenntur fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni.
Hann segir að hópurinn sé klár fyrir fyrsta leik gegn Stjörnunni, félagi sem Jón Þór þekkir vel eftir að hafa þjálfað þar áður.
„Það eru allir heilir nema Wout (Droste). Hann er búinn að vera glíma við meiðsli í allan vetur og er ekki klár. Aðrir eru tilbúnir," sagði Jón við Fótbolta.net.
Ætlar ÍA að bæta við sig leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokar?
„Nei, ég á ekki von á því. Það gæti verið að leikmenn verði lánaðir út, en það er ekki klárt eins og er. Það gætu farið einn eða tveir ungir strákar annað til að spila."
Jón Þór tók við ÍA á seinni hluta undirbúningstímabilsins eftir að Jóhannes Karl Guðjónsson var ráðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins.
„Það var alveg ljóst að við þurftum að hafa hraðar hendur. Það hefur gengið nokkuð vel og verið stígandi í okkar leik. Við höfum náð að vinna í þeim hlutum sem við vildum fá inn. Það hefur gengið vel og við áttum góða æfingaferð til Spánar."
Jón segist vera búinn að ákveða byrjunarliðið fyrir fyrsta leik. Hvort verður Árni Snær Ólafsson eða Árni Marinó Einarsson í markinu?
„Ég segi þér það ekki," sagði Jón og brosti.
Allt viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.