Fotbolti.net
14.04.24 - 14:40
Aksentije Milisic

Byrjunarlið Arsenal og Aston Villa: Trossard og Jesus byrja

Skoraði gegn Bayern.

Skoraði gegn Bayern.

Canon

Mynd: Getty Images

Síðasti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni fer fram á Emirates leikvangnum í London en þar mætast Arsenal og Aston Villa.

Arsenal er að berjast á toppnum við Manchester City og Liverpool um Englandsmeistaratitilinn á meðan Aston Villa er í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Gestirnir gerðu 3-3 jafntefli í síðasta deildarleik sínum gegn Brentford á heimavelli á meðan Skytturnar fóru létt með Brighton á útivelli og unnu 0-3.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gerir þrjár breytingar á sínu liði en Oleksandr Zinchenko, Leandro Trossard og Gabriel Jesus koma inn í liðið fyrir þá Jakub Kiwior, Jorginho og Gabriel Martinelli. 

Unai Emery, stjóri Aston Villa, gerir þá tvær breytingar en Douglas Luiz er í leikbanni og Leon Bailey fer á bekkinn. Inn koma þeir Nicolo Zaniolo og Moussa Diaby.

Arsenal: Raya; White, Saliba, Gabriel, Zinchenko; Odegaard, Rice, Havertz; Saka, Jesus, Trossard.
(Varamenn: Ramsdale, Partey, Smith Rowe, Martinelli, Nketiah, Kiwior, Tomiyasu, Jorginho, Vieira.)

Aston Villa: Martinez, Konsa, Carlos, Torres, Digne, Zaniolo, Tielemans, McGinn, Rogers, Diaby, Watkins.
(Varamenn: Olsen, Cash, Moreno, Chambers, Lenglet, Duran, Kesler-Hayden, Bailey, Iroegbunam.)

Zaniolo og Diaby.

Zaniolo og Diaby.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.