Maguire gæti elt McTominay til Napoli - Kolo Muani horfir til Englands - Nkunku vill fara frá Chelsea
   sun 14. apríl 2024 09:40
Elvar Geir Magnússon
Ótrúlegt að Viðar hafi ekki jafnað fyrir KA - „Algjörlega út úr karakter“
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA tapaði 2-3 fyrir FH á heimavelli sínum í gær en fékk sannkallað dauðafæri til að jafna leikinn eftir 86 mínútna leik, hreinlega ótrúlegt að boltinn hafi ekki legið í netinu.

„VIÐAR ÖRN Í DAUÐAFÆRI! Skalli á markið eftir hornspyrnu sem Sindri ver stórglæsilega. Boltinn berst út til Hrannars sem á fasta sendingu inn á teiginn og Viðar Örn er þar einn og óvaldaður en stýrir boltanum framhjá," skrifaði Jóhann Þór Hólmgrímsson, fréttamaður Fótbolta.net, í textalýsingu sinni.

Svo sannarlega algjörlega út úr karakter hjá þessum mikla markaskorara en ef KA hefði fengið að velja einhvern til að fá þetta færi hefði það alltaf verið hann.

Viðar virðist enn nokkuð langt frá því að finna sitt besta stand en hann gekk í raðir KA stuttu fyrir mót. Hann lék stundarfjórðung gegn jafntefli gegn HK í fyrstu umferð og kom inn á 72. mínútu í gær.

„Við sköpuðum nóg til að vinna á heimavelli, skutum í slá, klúðrum dauðafæri í lokin, skorum tvö mörk en að fá á sig þrjú mörk er eitthvað sem við viljum vera þekktir fyrir," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, í viðtali eftir leikinn í gær.

Lestu um leikinn: KA 2 -  3 FH

Dauðafæri Viðars er hægt að sjá í lokin á þessari yfirferð úr fréttum Stöðvar 2:


Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 22 15 4 3 56 - 23 +33 49
2.    Breiðablik 22 15 4 3 53 - 28 +25 49
3.    Valur 22 11 5 6 53 - 33 +20 38
4.    ÍA 22 10 4 8 41 - 31 +10 34
5.    Stjarnan 22 10 4 8 40 - 35 +5 34
6.    FH 22 9 6 7 39 - 38 +1 33
7.    Fram 22 7 6 9 31 - 32 -1 27
8.    KA 22 7 6 9 32 - 38 -6 27
9.    KR 22 5 6 11 35 - 46 -11 21
10.    HK 22 6 2 14 26 - 56 -30 20
11.    Vestri 22 4 6 12 22 - 43 -21 18
12.    Fylkir 22 4 5 13 26 - 51 -25 17
Athugasemdir
banner
banner
banner