Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   þri 14. apríl 2026 22:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Eimskip
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sigurmarkinu fagnað í kvöld.
Sigurmarkinu fagnað í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þetta var mikilvægur sigur. Mér fannst við fín í kvöld. Við sköpuðum slatta af færum og svo fannst mér við hafa stjórn á leiknum," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Úkraína

„Þær eru góðar í að verja markið sitt, eru fljótar að koma sér niður. Það er ekki auðvelt að fá dauðafæri á móti þeim. Manni hefði liðið betur að vera komin 2-0 yfir og vera með þessa stjórn á leiknum," sagði Steini.

Það voru tæplega 1500 manns á vellinum, ekkert frábær mæting í stúkuna á gífurlega mikilvægum leik.

„Þeir áhorfendur sem mættu voru frábærir, stóðu sig vel og skiptu okkur máli. Ég skal vera hreinskilinn að mér finnst það vera vonbrigði gagnvart því að liðið er búið að vera á meðal þeirra tólf bestu síðustu fimm eða sex ár. Við náum aldrei einhverjum fjölda á völlinn. England er að koma á laugardaginn og mér finnst skrítið ef það myndu ekki mæta fleiri þar."

Í síðasta landsleikjaglugga voru tæplega 30 þúsund manns á leik Englands og Íslands í Nottingham. Getum við dregið einhvern lærdóm af því?

„Nottingham er örlítið stærra en Ísland, örlítið fleiri sem búa þar. Samt koma 30 þúsund þar. Svo voru þau að spila á Wembley í kvöld og það voru 85-90 þúsund manns á vellinum þar. Auðvitað vonast maður til að það verði fjöldi á vellinum. Þetta er að gerast annars staðar en við erum ekki að ná fjölgun hér. Það er eitthvað sem við verðum að líta í eigin barm með, það er ekki fjölgun í kvennaboltanum hvort sem það er í landsleikjum eða í deild. Ég held að við þurfum að skoða það. Við þurfum að búa til áhorfendur úr yngri iðkendum, að það verði þeirra lífstíll að mæta á völlinn ef þær eru ekki sjálfar að spila. Ég trúi því að það er vegferðin sem við þurfum að fara í. Mér finnst skrítið að horfa upp á knattspyrnudeild sem er með 600 iðkendur í kvennaboltanum, að það mæti 150 á leik," sagði Steini.

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner