Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   fim 14. maí 2026 19:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM hópur Frakklands: Camavinga ekki með
Eduardo Camavinga fer ekki á HM
Eduardo Camavinga fer ekki á HM
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Kylian Mbappe er að sjálfsögðu í hópnum
Kylian Mbappe er að sjálfsögðu í hópnum
Mynd: EPA
Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, hefur kynnt hópinn sem fer á HM í Norður Ameríku í sumar. Hópurinn er ógnarsterkur að venju en Eduardo Camvinga, miðjumaður Real Madrid, var hins vegar ekki valinn.

„Hann er að koma úr erfiðu tímabili, hann spilaði minna og var að kljást við meiðsli. Hann er enn ungur, ég þurfti að velja en ég get ýmindað mér að hann sé sár í kvöld," sagði Deschamps.

Randal Kolo Muani, framherji Tottenham, fór á HM 2022 en er ekki í hópnum í þetta sinn. Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, fær hins vegar kallið.

Kylian Mbappé, Ousmane Dembélé, Désiré Doué, Michael Olise, Rayan Cherki og Maghnes Akliouche eru einnig sóknarmennirnir í hópnum.

Didier Deschamps hættir sem þjálfari liðsins eftir HM en hann vonast til að komast skrefi lengra en árið 2022 þegar liðið tapaði gegn Argentínu í úrslitum

Markmenn Mike Maignan (AC Milan), Robin Risser (Lens), Brice Samba (Rennes).

Varnamenn: Lucas Digne (Aston Villa), Malo Gusto (Chelsea), Lucas Hernandez (Paris St-Germain), Theo Hernandez (Al Hilal), Ibrahima Konate (Liverpool), Maxence Lacroix (Crystal Palace), Jules Kounde (Barcelona), William Saliba (Arsenal), Dayot Upamenaco (Bayern München).

Miðjumenn: N'Golo Kante (Fenerbache), Manu Kone (Roma), Adrien Rabiot (AC Milan), Aurelien Tchouameni (Real Madrid), Warren Zaire-Emery (Paris St-Germain).

Sóknarmenn: Maghnes Akliouche (Mónakó), Bradley Barcola (Paris St-Germain), Rayan Cherki (Man City), Ousmane Dembele (Paris St-Germain), Desire Doue (Paris St-Germain), Michael Olise (Bayern München), Kylian Mbappe (Real Madrid), Jean-Phillipe Mateta (Crystal Palace), Marcus Thuram (Inter Milan).



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner