Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
banner
   fim 14. maí 2026 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir frábæran sigur á KA á Akureyri í dag. Fótbolti.net ræddi við Nenad Zivanovic, þjálfara Ægis, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KA 1 -  2 Ægir

„Þetta var mjög góður leikur hjá strákunum. Við erum vanir að vera í 8-liða úrslitum, KA sló okkur út árið 2022 á þessum velli, sá leikur fór 3-0 en við vorum í þeim leik. Nú komumst við áfram, þessi leikur var vel framkvæmdur hjá leikmönnunum. Ég bað þá um að skilja hjarta og sál eftir á vellinum, ef þeir gera það þá koma úrslitin," sagði Nenad.

Þetta var frábær sigur fyrir liðið en Ægir er án stiga í Lengjudeildinni eftir þrjár umferðir.

„Við höfum ekki unnið marga leiki í sumar og vetur. Töpuðum öllum leikjunum í Lengjubikarnum og höfum aðeins unnið Reyni Sandgerði og Árbæ, lið sem eru í deildum fyrir neðan okkur. Þetta er auðvitað besti leikurinn okkar og besta frammistaðan," sagði Nenad.

„Ég vona að þetta verði góð innspýting fyrir leikmennina. Það er mjög erfiður leikur gegn Vestra á sunnudaginn. Við höfum ekki marga daga í endurheimt. Leikmennirnir nýttu mikla orku í dag. Við höfum tvo daga og ég vona að við verðum á góðum stað fyrir leikinn gegn Vestra."
Slapp
banner
banner