England tryggði sér farseðilinn í 16-liða úrslit Heimsmeistaramótsins í Frakklandi með 1-0 sigri á Argentínu í kvöld.
Eftir leikinn náðist mynd af þjálfaranum Phil Neville að hughreysta leikmann sinn, Fran Kirby.
Kirby var í byrjunarliði Englands og lék nánast allan leikinn. Hún var tekin út af þegar ein mínúta var eftir venjulegum leiktíma.
Eftir leikinn grét Kirby þar sem það eru 11 ár í dag síðan móðir hennar lést.
„Þetta var erfiður dagur. Ég sagði við hana að móðir hennar myndi líta niður stolt á hana. Við erum fjölskylda, þegar hún grætur, þá grátum við líka," sagði Neville við Talksport.
“It was Fran’s mum’s birthday today. She passed away when she was young.”
— talkSPORT (@talkSPORT) June 14, 2019
“Today was difficult, I said to her that her mum would be looking down proud.”
“We’re a family, when she cries, we cry.”
Phil Neville tells talkSPORT the story behind this photo with @FranKirby 👏 pic.twitter.com/UF1W093xP3
Athugasemdir