Fotbolti.net
14.06.21 - 20:44
Sverrir Örn Einarsson

Guðjón Ernir: Mesut Seku eins og við köllum hann

Auglýsing
Guðjón Ernir: Mesut Seku eins og við köllum hann
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
<i>„Þetta gerist ekki betra, geðveikt, þetta er liðinu að þakka, berjast þó við séum manni færri og klára leiki, geðveikt, frábært!"</i> sagði Guðjón Ernir Hrafnkelsson sem kom inná sem varamaður og skoraði sigurmarkið fyrir ÍBV í uppbótar tíma í 2-1 sigri á Þór í Lengjudeildinni í kvöld.
„Þetta er klárt sjálfstraustsboost, boostar okkur og sýnr að við getum gefið allt í leiki og klárað. Við getum þetta þó við séum manni færri."

Guðjón Pétur Lýðsson hafði misnotað vítaspyrnu seint í leiknum áður en nafni hans skoraði svo sigurmarkið.

„Svona er þetta bara, þó eitt víti klúðrist þá höldum við bara áfram, það er bara svoleiðis."

Seku Conneh átti draumasendingu á Guðjón Erni í sigurmarkinu og eftirleikurinn auðveldur.

„Alveg klárlega, Mesut Seku eins og við köllum hann. Þetta var alveg geggjuð sending og skylda að klára þetta fannst mér."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.