Úrvalsdeildarfélög berjast við PSG um franskan kantmann

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kantmaðurinn Maghnes Akliouche er gríðarlega eftirsóttur í sumar þar sem stærstu lið ensku úrvalsdeildarinnar eru á höttunum eftir honum rétt eins og ríkjandi Frakklands- og Evrópumeistarar síðustu tveggja ára, Paris Saint-Germain.
Akliouche er 24 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi við AS Mónakó, sem vill um 60 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Akliouche kom með beinum hætti að 18 mörkum í 43 leikjum á nýliðinni leiktíð og festi sig í sessi í franska landsliðinu.
Hann er í landsliðshópnum sem er statt á HM þessa stundina en hann hefur í heildina spilað 9 leiki fyrir A-landsliðið eftir að hafa unnið til silfurverðlauna með U23 liði Frakka á Ólympíuleikunum 2024.
Arsenal, Chelsea, Liverpool og bæði Manchester-liðin hafa verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm um Akliouche, auk PSG.

TENGT EFNI