Besta deildin: Botnlið FH náði í fyrsta sigurinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 1 - 2 FH
0-1 Adolf Daði Birgisson ('26)
0-2 Kjartan Kári Halldórsson ('41)
1-2 Stefan Alexander Ljubicic ('93)
0-1 Adolf Daði Birgisson ('26)
0-2 Kjartan Kári Halldórsson ('41)
1-2 Stefan Alexander Ljubicic ('93)
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 2 FH
Nýliðar Keflavíkur tóku á móti FH, sem hefur farið illa af stað í sumar, í seinni leik dagsins í Bestu deild karla.
Keflavík var sterkari aðilinn fyrstu 20 mínúturnar en gestirnir úr Hafnarfirði komu sér vel inn í leikinn og náðu forystunni eftir atgang í kjölfar hornspyrnu. Adolf Daði Birgisson var réttur maður á réttum stað og kom boltanum yfir marklínuna.
FH-ingar sköpuðu mikla hættu eftir opnunarmarkið og tvöfaldaði Kjartan Kári Halldórsson forystuna með glæsimarki á 41. mínútu. Kjartan fékk boltann úti vinstra megin og skoraði eftir laglegt einstaklingsframtak.
Staðan var 0-2 í leikhlé og komust heimamenn nálægt því að minnka muninn í upphafi síðari hálfleiks en Stefan Alexander Ljubicic hitti ekki boltann þegar hann var í dauðafæri.
Seinni hálfleikurinn var nokkuð rólegur og tókst heimamönnum ekki að minnka muninn fyrr en í uppbótartíma. Þar var Stefan Alexander á ferðinni og skoraði hann eftir góða sókn. Stefan gat ekki klúðrað úr dauðafæri eftir góða fyrirgjöf frá hægri kanti.
Keflvíkingar fengu hornspyrnu eftir markið hans Stefans en nýttu ekki, svo lokatölur urðu 1-2 og er fyrsti sigur FH á deildartímabilinu staðreynd.
FH er áfram á botni deildarinnar, nú með 5 stig eftir 10 umferðir. Keflavík er með 11 stig.