Fotbolti.net
14.06.26 - 19:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ekki búnir að missa trúna - „Annars værum við ekki áfram hérna"

Auglýsing
Ekki búnir að missa trúna - „Annars værum við ekki áfram hérna"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór tapaði sjöunda leiknum í röð þegar ÍBV kom í heimsókn á Akureyri í dag og er komið í fallsæti. Fótbolti.net ræddi við Eið Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfara Þórs, eftir leikinn.
„Við erum fúlir og mikil vonbrigði með úrslit leiksins. Mér fannst við byrja ágætlega og vorum hársbreidd frá því að skora. Svo skora þeir þrjú mörk á stuttum tíma og það fer með leikinn," sagði Eiður.

„Mér fannst við vera barnalegir í þeim atvikum. Það var auðvelt að koma í veg fyrir þau. Það er líka auðvelt að segja það að þetta séu auðveld mörk. þeir gerðu þetta vel og komu sér í þægilega stöðu."

Sjáið þið það fyrir okkur að þið getið snúið þessu við?

„Engin spurning. Annars værum við ekki áfram hérna. Við erum að læra 'the hard way' þessa dagana. Það er óþolandi að hugsa til þess að þetta séu sjö leikir í röð. Margir leikir sem mér finnst að hafi getað endað öðruvísi, hvort sem það er jafntefli eða sigur," sagði Eiður.

„Það er mjög fúlt. Þetta heggur pínu á sjálfstraustið en við vitum að fótbolti er leikur mómenta. Ef þú nærð einum sigri þá er auðvelt að ná í næsta. Ef þú nærð fyrsta markinu þá er auðvelt að skora næsta. Við þurfum að gera vel á æfingasvæðinu. Leikmenn eru jákvæðir."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.