Fotbolti.net
14.06.26 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Myndi skipta út öllum titlum ferilsins fyrir einn titil með Atlético

Myndi skipta út öllum titlum ferilsins fyrir einn titil með Atlético
Canon

Mynd: Como

Spænski framherjinn Álvaro Morata dauðsér eftir því að hafa yfirgefið Atlético Madrid á sínum tíma.
Morata er 33 ára gamall og fann ekki taktinn á síðustu leiktíð þegar hann lék með spútnik liði Como í ítölsku deildinni en stóð sig hörmulega. Como neyðist þrátt fyrir það til að festa kaup á Morata sem var hjá félaginu á lánssamningi frá AC Milan með kaupskyldu.

Morata skoraði aðeins eitt mark í 30 leikjum með Como sem gerði allt í sínu valdi til að krækja í Morata í fyrrasumar. Como þurfti að semja bæði við AC Milan og Galatasaray til að fá þennan fyrrum fyrirliða spænska landsliðsins til liðs við sig.

Það tókst að lokum en Morata stóðst alls ekki væntingarnar sem til hans voru gerðar. Hann var hörmulegur en Nico Paz og Anastasios Douvikas leiddu Como áfram og hjálpuðu liðinu að ná afar óvæntu Meistaradeildarsæti.

Morata er ekki ánægður með lífið á Ítalíu og sér eftir að hafa kosið að yfirgefa Atlético sumarið 2024. Morata skoraði 28 mörk í 68 deildarleikjum á tveimur árum hjá Atleti og tók svo gylliboði frá Mílanó sem gekk ekki upp.

Morata á í heildina 58 mörk í 154 leikjum með Atlético en hann hefur einnig spilað fyrir Real Madrid, Juventus og Chelsea á ferlinum.

„Stærstu mistök ferilsins voru að yfirgefa Atlético Madrid. Ég myndi skipta út öllum titlum ferilsins fyrir einn titil með Atleti. Þetta er félagið sem ég elska. Ég naut mín í botn hérna," segir Morata.

Þessi ummæli vekja athygli í ljósi þess að Morata ólst upp hjá Real Madrid og vann EM með spænska landsliðinu 2024. Hann hefur unnið mikið af titlum á ferlinum en aldrei tókst honum að vinna neitt sem leikmaður Atlético.

Fyrirliðinn þegar Spánn vann EM er ekki á 55 manna lista fyrir HM
TENGT EFNI

Fyrirliðinn þegar Spánn vann EM er ekki á 55 manna lista fyrir HM

Myndi skipta út öllum titlum ferilsins fyrir einn titil með Atlético
Canon

Mynd: EPA

Myndi skipta út öllum titlum ferilsins fyrir einn titil með Atlético
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.