Fotbolti.net
14.06.26 - 13:42
Brynjar Ingi Erluson

„Þeir sem vita lítið um fótbolta hugsa eins og þú“

Romario

Romario

Canon

Mynd: EPA

Brasilíska goðsögnin vildi ekki tala niður landslið Marokkó þegar hann mætti í viðtal eftir jafntefli þjóðarinnar við Brasilíu á HM í gær.
Romario er ekki með neina síu. Hann segir oft nákvæmlega það sem hann er að hugsa, þó það geti haft afleiðingar í för með sér.

Sem dæmi má nefna þegar hann sagði brasilísku goðsögninni Pele að troða skó upp í sig til að koma í veg fyrir að skíturinn myndi vella úr munni hans. Þetta sagði hann eftir að Pele hafði lýst þeirri skoðun sinni að Romario ætti að leggja skóna á hilluna árið 2005. Romario bað afsökunar á ummælum sínum aðeins nokkrum dögum síðar

Mörg fleiri ummæli koma upp í hugann. Til dæmis þegar hann var ekki valinn í hópinn fyrir HM 2002 vegna orðróms um að hann hefði sofið hjá flugfreyju í undankeppninni. Romario sagði síðar að hann hefði tapað tvisvar; annars vegar hefði hann ekki verið valinn í hópinn og hins vegar hefði hann ekki sofið hjá flugfreyjunni, sem hefði verið afar hugguleg að hans mati.

Óheflaður Romario var tekinn í viðtal eftir leikinn gegn Marokkó í gær og brasilíska íþróttafréttakonan Fernanda Gentil, sem er með fimmtán ára reynslu í bransanum, spurði hann hvort jafnteflið hefði verið eins og tap fyrir Brasilíu. Romario svaraði þá fullum hálsi:

„Þeir sem vita lítið um fótbolta hugsa eins og þú,“ sagði Romario.

Marokkó spilaði frábæran fótboltaleik og óð í færum, en einstaklingsframtak Vinicius Junior tryggði Brasilíumönnum stig úr leiknum.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.