Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. júlí 2019 20:09
Arnar Helgi Magnússon
Noregur: Arnór með bæði mörk Lillestrøm í sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lillestrøm 2 - 1 Strømsgodset
1-0 Arnór Smárason
2-0 Arnór Smárason
2-1 Kristoffer Tokstad

Arnór Smárason var frábær þegar Lillestrøm tók á móti Strømsgodset í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Leiknum lauk með 2-1 sigri Lillestrøm og skoraði Arnór bæði mörk liðsins!

Arnór kom sínu liði yfir á 42. mínútu. Hann var aftur á ferðinni í uppbótartímanum í fyrri hálfleik þegar hann tvöfaldaði forystu Lillestrøm. 2-0 í hálfleik.

Kristoffer Tokstad klóraði í bakkann fyrir gestina í síðari hálfleik en lengra komust þeir ekki. Lokatölur 2-1.

Lillestrøm situr nú í tíunda sæti deildarinnar á meðan Strømsgodset er enn þá í botnsætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner