Cubarsí ekki hræddur við Mbappé

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Miðvörðurinn ungi Pau Cubarsí hefur gert gott mót á HM með spænska landsliðinu og er í byrjunarliðinu sem mætir Frakklandi í undanúrslitum í kvöld.
Cubarsí er aðeins 19 ára gamall og mun þurfa að gæta Kylian Mbappé og félaga í ógnarsterkri sóknarlínu Frakka. Þeir eru allir álitnir sem leikmenn í heimsklassa og því gæti vaktin hjá Cubarsí orðið ansi annasöm, en hann er hvergi smeykur.
Cubarsí og Mbappé þekkjast vel eftir að hafa oft mæst í hinum ýmsu keppnum á undanförnum árum.
„Ég er ekki hræddur við Mbappé, alls ekki. Allir vita hvaða gæðum hann býr yfir, þetta er leikmaður sem getur skipt sköpum í leikjum. Þó hann eigi lélegan leik þá hefur hann gæðin til að skora hvenær sem er," segir Cubarsí.
„Hann er einstakur leikmaður, eins og Lamine Yamal. Gegn honum þarf maður að vera 100% einbeittur allan leikinn og það er ekki alltaf nóg."

TENGT EFNI
Byrjunarlið Frakklands og Spánar: Deschamps gerir tvær breytingar

Mynd: EPA