Fotbolti.net
05.08.26 - 15:42
Elvar Geir Magnússon

Svona gæti Arsenal stillt upp með Bruno og Vini

Vinicius Junior,

Vinicius Junior,

Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal eru að kaupa brasilíska miðjumanninn Bruno Guimaraes, fyrirliða Newcastle, fyrir 75 milljónir punda.

Þá er Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, orðaður við Arsenal og sagt að enska félagið fylgist grannt með þróun mála hjá honum. Vinicius er kominn á lokaár samnings síns og óvíst hvort samkomulagi náist um framlengingu við spænska stórveldið.

Það eru sagðir hnútar í viðræðunum þegar kemur að ímyndarrétti leikmannsins og launum. Vinicius vill fá sömu laun og Kylian Mbappe

Það er mikil samkeppni um sæti í sterku liði Arsenal en Mirror setti saman hugsanlegt byrjunarlið með Bruno og Vini báða innanborðs.
Arsenal búið að ná samkomulagi við Newcastle um kaupverð á Bruno
TENGT EFNI

Arsenal búið að ná samkomulagi við Newcastle um kaupverð á Bruno

Mynd: Mirror

Heimild: Mirror

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.