Fotbolti.net
04.08.26 - 21:16
Elvar Geir Magnússon

Infantino kallar saman til krísufundar - Sakaður um fjárkúgun

Gianni Infantino.

Gianni Infantino.

Canon

Mynd: EPA

Gianni Infantino hefur boðað æðstu stjórnendur FIFA til krísufundar í Marokkó á morgun í kjölfar harðrar gagnrýni vegna hinnar misheppnuðu áætlunar hans um að bjóða einkaaðilum að kaupa hlutdeild í viðburðum sambandsins, þar á meðal HM.

Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka en staða Infantino sem forseti FIFA hefur veikst verulega.
Fleiri lönd draga stuðning við Infantino til baka
TENGT EFNI

Fleiri lönd draga stuðning við Infantino til baka

Gagnrýnisröddunum hefur fjölgað hratt en Mattias Grafström, framkvæmdastjóri FIFA, hefur bæst í hóp þeirra sem hafa gagnrýnt hugmyndirnar. Hann hefur verið hægri hönd Infantino undanfarin ár.

Grafström sendi tölvupóst til starfsfólks FIFA þar sem hann lýsti síðustu viku sem „harmleik og atburðarás sem verðskuldi ámæli“. Hann tók í sama streng og Kevin Lamour, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs FIFA, hafði áður gert.

Arsene Wenger, yfirmaður fótboltaþróunar hjá FIFA, hefur tjáð sig og segir í yfirlýsingu að það hafi verið algjörlega nauðsynlegt að hætta við áætlunina. Hann segist ekki hafa vitað af þessum hugmyndum og ekki komið nálægt þeim.

Munu ekki styðja Infantino
Prins Ali bin al-Hussain, formaður fótboltasambands Jórdaníu, skrifaði yfirlýsingu í dag þar sem hann sakar FIFA um fjárkúgun í tengslum við mögulegt endurkjör Infantino.

Prins Ali segir Jórdaníu eiga eftir að fá verðlaunafé sem liðið vann sér inn með því að hafna í öðru sæti í Arabíubikarsins og FIFA hafi reynt að nýta sér það til að afla Infantino stuðnings.

„Það er ljóst að vandinn liggur hjá forystunni. Í marga mánuði hefur FIFA neitað að aðstoða okkur – þar til mér var tjáð munnlega að ef ég lýsti yfir stuðningi við Infantino myndi það hjálpa við að leysa vandamálin. Við í Jórdaníu leggjum metnað okkar í að virða siðferðileg gildi. Við lýstum ekki yfir stuðningi við hann áður og munum vissulega ekki gera það núna. Allt þetta mál jafngildir fjárkúgun og við neitum að láta undan slíku," segir prins Ali.
Prins Ali Bin Al-Hussein.

Prins Ali Bin Al-Hussein.

Canon

Mynd: EPA

Infantino hefur boðað æðstu menn FIFA til fundar.

Infantino hefur boðað æðstu menn FIFA til fundar.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.