Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 20. sæti

05.08.26

Spáin fyrir enska - 20. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Það styttist heldur betur í það að þjóðaríþrótt Íslendinga, enska úrvalsdeildin, fari aftur af stað. Líkt og síðustu ár, þá munum við kynna liðin í deildinni eftir því hvar þau enda í sérstakri spá fréttamanna Fótbolta.net.

Við byrjum á nýliðum Hull City sem er spáð neðsta sætinu með afgerandi þætti.
Hull City snýr aftur í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í tíu ár eftir dramatískt tímabil sem fáir höfðu reiknað með. Hull hafði rétt sloppið við fall úr Championship árið áður en endaði síðan í sjötta sæti og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni með sigri í umspilinu á Wembley. Vegna félagaskiptabanns þurfti félagið að treysta á lánssamninga og leikmenn á frjálsri sölu, en Sergej Jakirovic, sem var á sínu fyrsta tímabili í enskum fótbolta, náði engu að síður að búa til lið sem refsaði andstæðigum af mikilli skilvirkni.

Á bak við árangurinn leynast þó ýmis viðvörunarmerki. Hull fékk á sig óvenju mikið af mörkum fyrir lið sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni og undirliggjandi tölfræði varnarleiksins var með því allra lakasta í Championship. Reyndar hefði liðið fallið samkvæmt vænt stigum tölfræðinni, sem er afar óvenjulegt fyrir lið sem endar á að fara upp um deild. Það gefur ekki sérstaklega góð fyrirheit fyrir komandi tímabil.

Stuðningsmenn eru eðlilega spenntir fyrir endurkomunni í úrvalsdeildina en gera sér jafnframt grein fyrir því hversu erfitt verkefnið verður. Hull getur nú styrkt hópinn með varanlegum kaupum og þarf að hitta vel í félagaskiptaglugganum ef liðið ætlar að forðast fall aftur niður í Championship. Fréttafólk Fótbolta.net hefur ekki trú því aðeins einn aðili spáði þeim 19. sæti en allir hinir voru með Hull í neðsta sætinu.

Stjórinn: Sergej Jakirovic er áhugavert nýtt nafn í ensku úrvalsdeildinni. Bosníumaðurinn tók við Hull fyrir síðasta tímabil og leiddi liðið óvænt alla leið upp í úrvalsdeildina eftir sigur í umspilinu. Jakirovic hefur byggt upp orðspor sem þjálfari sem nær árangri hvar sem hann kemur, eftir góðan feril hjá Zrinjski Mostar, Rijeka, Dinamo Zagreb og Kayserispor. Hann hefur sýnt að hann getur aðlagað leikstíl sinn að þeim verkefnum sem bíða og breytti meðal annars nálgun Hull á síðasta tímabili til að gera liðið skipulagðara. Nú stendur hann hins vegar frammi fyrir langstærsta verkefni ferilsins.
Spáin fyrir enska - 20. sæti

Mynd: EPA

Leikmannaglugginn: Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með Ali Acun Ilicali, eiganda Hull City, á samfélagsmiðlum í sumar en hann hefur verið hreinskilinn og opinskár með það hvaða leikmenn Hull er að reyna að fá. Það eru fjórir leikmenn komnir inn um dyrnar en þeir þurfa miklu meira.

Komnir:
Jack Butland frá Rangers - 3,5 milljónir punda
Hidemasa Morita frá Sporting Lissabon - Á frjálsri sölu
Matt Targett frá Newcastle - Á frjálsri sölu
Óscar Zambrano frá Maribor - Óuppgefið kaupverð

Farnir:
Ivor Pandur til Rangers - 6 milljónir punda
Kyle Joseph til Middlesbrough - Óuppgefið kaupverð
Kasey Palmer til Luton Town - Óuppgefið kaupverð
Akin Famewo til Bolton - Óuppgefið kaupverð

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob
Spáin fyrir enska - 20. sæti

Mynd: Hull City

Lykilmaður: Oli McBurnie
Oli McBurnie verður lykilmaður í sóknarleik Hull á komandi tímabili. Skotinn kom til félagsins eftir fall Las Palmas á Spáni og reyndist sannkallaður happafengur, skoraði 19 mörk í öllum keppnum og gerði meðal annars sigurmarkið í úrslitaleik umspilsins. McBurnie er einn af fáum leikmönnum Hull sem býr yfir reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og verður mikilvægur þegar liðið stígur upp um deild. Hann er sterkur í að halda boltanum, vinna návígi og gefa liðsfélögum tíma til að komast framar á völlinn, eiginleikar sem gætu reynst Hull gríðarlega dýrmætir í baráttunni um að halda sæti sínu.

Fylgist með: Mohamed Belloumi
Gæti orðið einn af skemmtilegri leikmönnum Hull á komandi tímabili ef hann nær að halda sér heilum. Alsírski kantmaðurinn missti nánast af öllu fyrsta tímabili sínu hjá félaginu vegna krossbandsslita og glímdi síðan einnig við meiðsli á síðustu leiktíð. Þegar Belloumi var loksins kominn á fullt sýndi hann hins vegar hversu miklum hæfileikum hann býr yfir, til dæmis hann gerði hann það í undanúrslitum umspilsins gegn Millwall. Ef hann nær stöðugleika og sleppur við meiðsli gæti hann orðið einn helsti X-faktor Hull í baráttunni um að halda sæti sínu í deildinni.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan er að Hull endi í 17. sæti og versta mögulega niðurstaðan er að liðið bæti stigamet Derby County frá 2009 yfir fæst stig í sögu deildarinnar.

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
Spáin fyrir enska - 20. sæti

Mynd: Hull City

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. ?
16. ?
17. ?
18. ?
19. ?
20. Hull City, 14 stig

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.