05.08.26
Spáin fyrir enska - 19. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Við höldum áfram að spá í spilin fyrir komandi keppnistímabil í ensku úrvalsdeildinni. Núna er komið að liðinu sem er spáð 19. sætinu en það er Ipswich Town sem er komið aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir eins árs fjarveru.
Ipswich Town er komið aftur í ensku úrvalsdeildina eftir stutta veru í næst efstu deild - aðeins eitt tímabil. Ólíkt því sem var sumarið 2024 kemur félagið nú upp með sterkari leikmannahóp og mun betri fjárhagsstöðu, sem gefur meiri möguleika á að styrkja liðið fyrir verkefnið sem framundan er. Á pappírnum virðist Ipswich því betur í stakk búið til að takast á við úrvalsdeildina en síðast.
Á móti kemur að liðið hefur misst stærsta arkitekt uppgangsins. Kieran McKenna, sem stýrði Ipswich úr League One alla leið í ensku úrvalsdeildina og breytti félaginu á ótrúlega skömmum tíma, hefur tekið sér hlé frá fótbolta. Í hans stað er kominn Gary O'Neil, sem hefur áður sýnt að hann getur haldið liðum uppi í úrvalsdeildinni með Bournemouth og Wolves. Hann stendur þó frammi fyrir stóru verkefni að feta í fótspor McKenna.
Þrátt fyrir að stuðningsmenn Ipswich séu bjartsýnir er ljóst að verkefnið verður erfitt. Liðið var ekki jafn sannfærandi í Championship og þegar það vann sér síðast sæti í úrvalsdeildinni og margir velta því fyrir sér hvort uppgangurinn hafi fyrst og fremst byggst á stjórnunarhæfileikum McKenna. Nú þarf O'Neil að sýna að Ipswich geti staðið á eigin fótum og komið sér fyrir á meðal bestu liða Englands.
Stjórinn: Gary O'Neil tekur við Ipswich á erfiðum tímapunkti eftir að Kieran McKenna kvaddi félagið. O'Neil hefur þegar sýnt að hann getur staðið sig í ensku úrvalsdeildinni, þar sem hann hélt bæði Bournemouth og Wolves uppi við krefjandi aðstæður áður en hann stýrði Strasbourg í Frakklandi um skamma hríð. Sem leikmaður vann hann sæti í úrvalsdeildinni með erkifjendunum í Norwich árið 2015, en nú fær hann það verkefni að festa Ipswich í sessi á meðal bestu liða Englands. Það verður stærsta áskorun ferils hans hingað til og gæti jafnframt orðið fyrsta tækifæri hans til að byggja upp verkefni til lengri tíma hjá sama félagi.

Mynd: EPA
Leikmannaglugginn: Ipswich hefur eytt stórum fjárhæðum í leikmenn í sumar og ætti að mæta með sterkari hóp núna en síðast í ensku úrvalsdeildina.
Komnir:
Emersonn frá Toulouse - 24 milljónir punda
Abdul Fatawu frá Leicester - 20 milljónir punda
Florentino Luís frá Burnley - 16 milljónir punda
Daizen Maeda frá Celtic - 10 milljónir punda
Kjell Scherpen frá Union St-Gilloise - 8,6 milljónir punda
Issa Diop frá Fulham - 8,5 milljónir punda
Chuba Akpom frá Ajax - 7 milljónir punda
Kayne van Oevelen frá Volendam - 3,4 milljónir punda
Cédric Kipré frá Reims - 1,7 milljónir punda
Farnir:
Arijanet Muric til Sassuolo - 6 milljónir punda
Sam Szmodics til Derby County - Á láni
Conor Townsend til West Brom - Á frjálsri sölu
Conor Chaplin til Leicester - Á frjálsri sölu
Líklegt byrjunarlið

Lykilmaður: Dara O'Shea
O'Shea verður lykilmaður í vörn Ipswich á komandi tímabili. Írski landsliðsmaðurinn spilaði allar deildarleiki liðsins á síðasta tímabili og var einn stöðugasti leikmaður hópsins, bæði sem öflugur miðvörður og leiðtogi inni á vellinum. O'Shea hefur áður fallið úr ensku úrvalsdeildinni með þremur mismunandi félögum og verður því staðráðinn í að breyta þeirri sögu núna. Ef Ipswich ætlar sér að halda sæti sínu í deildinni verður sterkur varnarleikur lykilatriði og þar mun O'Shea bera mikla ábyrgð.
Gaman að fylgjast með: Azor Matusiwa
Gæti reynst einn mikilvægasti leikmaður Ipswich á miðsvæðinu. Hollendingurinn er orkumikill miðjumaður sem vinnur gríðarlega mikið fyrir liðið, vinnur bolta og heldur góðu jafnvægi á milli varnar og sóknar. Áhrif hans á leik liðsins eru oft gríðarleg og hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum.
Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan er að Ipswich taki skref fram á við frá því tímabilið 2024/25 og haldi sér bara nokkuð þægilega uppi, en versta niðurstaðan er sú að liðið eigi aldrei séns og falli niður um deild með sannfærandi hætti.
Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Mynd: Ipswich
Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. ?
16. ?
17. ?
18. ?
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. ?
16. ?
17. ?
18. ?
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig

Mynd: Burnley