Fotbolti.net
05.08.26 - 12:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Útskýrir af hverju hann er kominn í Þór eftir farsælan feril á Spáni

Í leiknum í gær.

Í leiknum í gær.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Það vakti mikla athygli í síðustu viku þegar heyrðist af því að Kevin Vazquez væri á leiðinni til Þórs á Akureyri. Kevin, sem er 33 ára, kemur frá Spoting Gijon í spænsku B-deildinni og var einn af varafyrirliðum liðsins.

Áður en hann fór til Gijon spilaði hann með Celta Vigo og lék alls 68 leiki í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni.

Fótbolti.net ræddi við Spánverjann um ákvörðunina að semja við Þór.
Veit ekki af hverju Þór varð fyrir valinu - „Komið svakalega á óvart”
TENGT EFNI

Veit ekki af hverju Þór varð fyrir valinu - „Komið svakalega á óvart”

Vildu upplifa lífið í öðru landi
„Samningur minn við Sporting Gijón kláraðist og eftir að hafa spilað allan minn feril á Spáni, þá fundum við eiginkonan að þetta væri rétti tímapunkturinn til að upplifa fótbolta og lífið erlendis. Við trúum því að búa í öðru landi hjálpi þér að vaxa sem einstaklingur og gefi þér annað sjónarhorn, og það var eitthvað sem við virkilega vildum gera."

„Þegar tækifærið að fara í Þór bauðst leið okkur eins og það smell passaði. Ísland er fallegt land með einstök lífsgæði og frá fyrstu samtölum hafði ég mjög góða tilfinningu fyrir félaginu. Þjálfarateymið, stjórnin og liðsfélagarnir tóku strax mjög vel á móti okkur og það var mjög mikilvægt í ákvörðun minni."

„Ég er mjög ánægður og stoltur að vera leikmaður Þórs. Ég er bara búinn að vera hér í stuttan tíma, en ég finn strax að þetta er sérstakt félag og ég er spenntur að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum."


Eiður og EM ævintýrið
Vissir þú eitthvað um íslenskan fótbolta áður en Þór hafði samband?

„Já, auðvitað. Það sem var efst í huganum var landsliðið. Ég man ennþá eftir ótrúlegu gengi liðsins á EM 2016. Jafntefli á móti Portúgal í riðlinum og svo var sigurinn á móti Englandi magnaður."

„Það sem heillaði mig mest var ástríðan í íslensku stuðningsmönnunum. Og auðvitað vita allir hver Eiður Guðjohnsen er. Hann átti frábæran feril og er frábær sendiherra fyrir íslenskan fótbolta."


Markmiðið að halda liðinu uppi
Hvert er markmiðið hjá Þór?

„Aðalmarkmiðið er að hjálpa liðinu að tryggja sætið í deildinni. Það er mikilvægasta markmiðið og allir hjá félaginu eru að leggja hart að sér til að ná því."

„Ég persónulega vil bara hjálpa liðinu á allan mögulegan hátt. Ég kem inn með reynslu, legg hart að mér á hverjum degi og reyni að hafa jákvæð áhrif bæði innan og utan vallar. Ef ég get hjálpað liðinu ná sínum markmiðum og ungum leikmönnum með reynslu minni, þá verð ég mjög glaður."


Hvatningin kemur innan frá
Þú hefur spilað í La Liga gegn mörgum af bestu leikmönnum heims. Hver er hvatningin fyrir þig að spila í Bestu deildinni?

„Fyrir mitt leyti hefur það ekki skipt máli varðandi hvatningu hvað sé fyrir framan þig. Hún kemur innan frá. Þetta snýst um að skora á sjálfan þig á hverjum degi og alltaf að reyna verða betri leikmaður."

„Þetta er mjög mikilvæg áskorun fyrir mig. Ég er að fara úr þægindarammanum, flyt til nýs lands, aðlagast öðru tungumáli og öðrum kúltúr, og sanna fyrir mér að ég geti spilað á mínu hæsta mögulega getustigi í alveg nýju umhverfi."


Spilað á móti stórstjörnum
Þegar ferill Kevin er skoðaður sést að hann hefur mætt leikmönnum á borð við Vinicius Junior, Gareth Bale, Eden Hazard, Ousmane Dembele, Mikel Oyarzabal, Nico Williams, Ansu Fati, Ferran Torres, og deilt velli með Lionel Messi.

Hver var erfiðasti andstæðingurinn og hver er lykillinn að því að verjast gegn svo öflugum leikmönnum?

„Lykilinn þegar þú mætir leikmenn á slíku gæðastigi er að halda einbeitingu hverja einustu sekúndu. Þú verður að vera andlega á verði og fara 100% í allar aðgerðir því ef þú missir einbeitingu í bara eitt augnablik, þá geta þeir refsað þér um leið."

„Þetta eru allt ótrúlegir leikmenn, hver og einn með mismunandi eiginleika, svo það er erfitt að segja hvort einhver var erfiðari andstæðingur en annar."

„Ef ég ætti að velja, þá myndi ég segja að ég hafi notið þess mest að spila á móti Vinicius því við mættumst nokkrum sinnum. Þetta voru alltaf spennandi og krefjandi einvígi, og sem varnarmaður nýtur þú þess mest að máta þig á móti leikmönnum í þessum gæðaflokki."

„Þegar allt kemur til alls er alltaf mikil áskorun að spila á móti þeim bestu, og sú reynsla hjálpaði mér að vaxa mikið sem leikmaður."


Kevin lék sem djúpur miðjumaður í fyrsta leik sínum með Þór í gær. Hann lék fyrstu 75 mínúturnar í sigri á Breiðabliki.

Hægri bakvörður en til í að spila hvar sem er
Hver er þín besta staða?

„Uppáhaldsstaðan mín er að vera inni á vellinum og hjálpa liðinu. Ef ég get lagt mitt af mörkum, þá er ég ánægður."

„Að því sögðu þá líður mér best í hægri bakverðinum af því þar hef ég spilað mest á mínum ferli. Það er staða sem hentar mínum eiginleikum og þar er ég með mesta reynsluna. En fyrir mig, þá kemur liðið alltaf fyrst. Hvar sem þjálfarinn trúir að ég geti hjálpað liðinu mest, þar er ég til í að spila,"
segir Kevin að lokum.

Næsti leikur Þórs verður gegn ÍA á Akranesi næsta sunnudag.
Samdi við Þór í síðustu viku.

Samdi við Þór í síðustu viku.

Canon

Mynd: Þór

Í baráttunni við Vinicius Junior.

Í baráttunni við Vinicius Junior.

Canon

Mynd: EPA

'Hann átti frábæran feril og er frábær sendiherra fyrir íslenskan fótbolta'

'Hann átti frábæran feril og er frábær sendiherra fyrir íslenskan fótbolta'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

'Ég man ennþá eftir ótrúlegu gengi liðsins á EM 2016. Jafntefli á móti Portúgal í riðlinum og svo var sigurinn á móti Englandi magnaður'

'Ég man ennþá eftir ótrúlegu gengi liðsins á EM 2016. Jafntefli á móti Portúgal í riðlinum og svo var sigurinn á móti Englandi magnaður'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Kevin í baráttunni við Nico Williams.

Kevin í baráttunni við Nico Williams.

Canon

Mynd: EPA

Í baráttunni í gær.

Í baráttunni í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR16+2235
4Breiðablik17+829
5Valur17-719
6ÍA17-819
7Keflavík16-819
8Stjarnan17-1118
9ÍBV17-916
10KA16-815
11Þór17-2415
12FH16-1113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.