Fotbolti.net
14.07.26 - 20:19
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ekki til Inter útaf mögulegum hjartagalla

Ekki til Inter útaf mögulegum hjartagalla
Canon

Mynd: EPA

Ítalíumeistarar Inter eru enn í leit að hægri vængbakverði eftir að Real Madrid nýtti riftunarákvæði í samningi Denzel Dumfries til að kaupa Hollendinginn öfluga.
Arftaki Dumfries kostar 30 milljónir
TENGT EFNI

Arftaki Dumfries kostar 30 milljónir

Þeir töldu Ísraelann Anan Khalaili geta tekið við keflinu af Dumfries en hann féll á læknisskoðun hjá ítölskum fótboltayfirvöldum vegna mögulegs hjartagalla.

Ítalska deildin er þekkt fyrir að vera með talsvert strangari kröfur heldur en aðrar deildir þegar kemur að mögulegum hjartavandamálum og eftir nána skoðun fékk Khalaili ekki grænt ljós á félagaskiptin.

Inter var búið að ná samkomulagi við Royale Union Saint-Gilloise um 25 milljón evru kaupverð fyrir Khalaili sem gaf samþykki fyrir fimm ára samningi við stórveldið.

Ítalíumeistararnir hafa hingað til keypt einn leikmann í sumar, hinn bráðefnilega Aleksandar Stankovic sem er sonur Dejan Stankovic og ólst upp hjá Inter. Hann var seldur til Club Brugge í fyrrasumar með endurkaupsákvæði sem félagið nýtti sér í sumar.

Enski landsliðsmaðurinn Djed Spence hefur verið nefndur til sögunnar sem mögulegur arftaki fyrir Dumfries.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Ekki til Inter útaf mögulegum hjartagalla
Canon

Mynd: EPA

Ekki til Inter útaf mögulegum hjartagalla
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.