ÍA gæti fengið hátt í hálfan milljarð við söluna á Hákoni

Hákon Arnar Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hákon Arnar Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FC Kaupmannahöfn er að selja Hákon Arnar Haraldsson til Lille í Frakklandi fyrir rúmlega 2,5 milljarð íslenskra króna samkvæmt BT í Danmörku, eða 17 milljónir evra.
Hákon er sagður á leið í læknisskoðun hjá franska félaginu seinna í dag.

Þegar Hákon var seldur til FCK frá ÍA fyrir fjórum árum var samið um að ÍA fengi prósentu af næstu sölu Hákons. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hljóðar það ákvæði upp á 19,5%.
Það er þá um 489 milljónir íslenskra króna að ræða. Einhver hluti kaupverðs Lille er væntanlega árangurstengdar greiðslur og því líklegt að ÍA fái ekki alveg alla upphæðina greidda í einu.
Hákon er tvítugur Skagamaður sem hefur verið hjá FCK síðan 2019 og vakið mikla athygli. Hann hjálpaði liðinu að verða danskur meistari á liðnu tímabili. Hann er sóknarmiðjumaður sem hefur leikið ellefu landsleiki fyrir Ísland og skorað eitt mark.