Fotbolti.net
14.07.26 - 15:38
Innkastið

Telja Þórsara hafa ofmetið eigin hóp

Töpuðu 6-1 gegn Fram á sunnudag.

Töpuðu 6-1 gegn Fram á sunnudag.

Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Lítið hefur gengið hjá nýliðum Þórs í Bestu deildinni undanfarin misseri. Liðið situr í neðsta sæti deildarinnar með átta stig.

Af stigunum átta komu sex þeirra í fyrstu þremur umferðunum. Baldvin Már Borgarsson velti því fyrir sér í Innkastinu hvort Þórsarar hafi ofmatið eiginn leikmannahóp komandi inn í mótið.
„Ég held það, það voru miklar vonir bundnar við (Yann Emmanuel) Affi til dæmis. Ágúst Hlyns kemur líka inn en hann hefur því miður ekki sýnt nægilega mikið. Atli Sigurjóns kemur og hefur verið meiddur,“ sagði Valur Gunnarsson og heldur áfram.

„Þeir hafa verið mjög óheppnir með meiðsli. Mér finnst Aron Birkir hafa verið flottur í markinu. En ég held að þetta sé rétt. Við og þeir sjálfir ofmátum liðið fyrir mót.“

Þór á von á liðsstyrk þegar glugginn opnar síðar í vikunni en Aron Einar Gunnarsson mun snúa aftur til félagsins. Liðið hefur jafnframt reynt við Adam Ægi Pálsson, sem er á leið til grannanna í KA, og Árna Vilhjálmsson, sem er genginn í raðir Stjörnunnar.
Fimm stigum frá öruggu sæti.

Fimm stigum frá öruggu sæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.