Fotbolti.net
14.07.26 - 15:24
Elvar Geir Magnússon

Tielemans í læknisskoðun hjá Man Utd

Tielemans var fyrirliði Belga á HM.

Tielemans var fyrirliði Belga á HM.

Canon

Mynd: EPA

Belgíski miðjumaðurinn Youri Tielemans er í læknisskoðun hjá Manchester United en félagið er að kaupa hann fyrir 35 milljónir punda, riftunarákvæði í samningi hans við Aston Villa hljóðar upp á þá upphæð.

United er að vinna í að styrkja miðsvæði sitt en ekkert varð af því að Brasilíumaðurinn Ederson yrði keyptur frá Atalanta þar sem viðvörunarbjöllur hringdu í læknisskoðun.
Tielemans með riftunarákvæði sem Man Utd nýtir sér
TENGT EFNI

Tielemans með riftunarákvæði sem Man Utd nýtir sér

Casemiro yfirgaf United eftir síðasta tímabil og United er með í forgangi að styrkja miðsvæðið. Andrey Santos er kominn frá Chelsea en hann er 22 ára og ekki með mikla reynslu.

Tielemans er bestur sem 'átta' sem er hlutverkið sem Kobbie Mainoo fékk þegar hann kom aftur inn í byrjunarlið United eftir að Michael Carrick tók við.

„Ég get ekki séð Tielemans og Kobbie Mainoo spila saman," segir Paul Scholes, fyrrum miðjumaður United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.