Ída til Englands á kunnuglegar slóðir?

Markahæst í Bestu deildinni með átta mörk.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markahæst í Bestu deildinni með átta mörk.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Landsliðskonan Ída Marín Hermannsdóttir hefur verið orðuð við atvinnumennsku erlendis en hún kaus að tjá sig ekki um það þegar hún veitti viðtal eftir fimmuna sem hún skoraði gegn Þrótti í síðustu viku.
Fótbolti.net fékk ábendingu um að enska félagið Charlton væri á meðal félaga sem hefði augastað á Ídu og samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru FH-ingar meðvitaðir um áhuga á Ídu frá Englandi.
Fótbolti.net fékk ábendingu um að enska félagið Charlton væri á meðal félaga sem hefði augastað á Ídu og samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru FH-ingar meðvitaðir um áhuga á Ídu frá Englandi.

TENGT EFNI
Ída Marín um hvort hún sé að fara í atvinnumennsku: No comment
Ída hefur tengingu við Charlton þar sem faðir hennar, Hermann Hreiðarsson, lék með Charlton á árunum 2003-2007, en Ída er fædd á Englandi árið 2002.
Charlton komst upp í efstu deild á Englandi í vor eftir að hafa endað í 3. sæti næstefstu deildar og vann svo umspilið.
Ída, sem kom í FH frá Val 2024, er samningsbundin FH þangað til í nóvember.
Charlton komst upp í efstu deild á Englandi í vor eftir að hafa endað í 3. sæti næstefstu deildar og vann svo umspilið.
Ída, sem kom í FH frá Val 2024, er samningsbundin FH þangað til í nóvember.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hemmi í leik með Charlton í baráttunni við Steed Malbranque, leikmann Fulham.





