Fotbolti.net
14.07.26 - 14:49
Elvar Geir Magnússon

Messi fær „uppáhalds dómarann sinn“

Messi og Elfath fyrir úrslitaleik HM 2022.

Messi og Elfath fyrir úrslitaleik HM 2022.

Canon

Mynd: EPA

Enskir fjölmiðlar óttast að dómaravalið á undanúrslitaleik Englands og Argentínu hagnist Lionel Messi og ríkjandi heimsmeisturum. Argentína hefur ekki verið mjög sannfærandi en stórar ákvarðanir dómara fallið með liðinu og það reynst uppspretta samsæriskenninga.

Í gærkvöldi var tilkynnt að bandaríski dómarinn Ismail Elfath hefði verið valinn til að dæma leikinn annað kvöld en þetta verður hans stærsta verkefni á ferlinum.

Elfath er upphaflega frá Marokkó en fluttist til Bandaríkjanna 18 ára gamall.
Umdeilt dómaraval á leik Englands og Argentínu
TENGT EFNI

Umdeilt dómaraval á leik Englands og Argentínu

Daily Mail talar um Elfath sem „uppáhalds dómara Messi“. Hann var fjórði dómari í Katar þegar Argentína vann Frakkland í úrslitaleiknum 2022 og hefur síðan oft dæmt hjá argentínsku stórstjörnunni.

Mánuði eftir að Messi gekk í raðir Inter Miami vann hann deildabikarinn með liðinu en Elfath dæmdi úrslitaleikinn. Síðan Messi kom í bandarísku MLS-deildina hefur hann fagnað sigri í öllum leikjum sem Elfath hefur flautað.

Hlotið gagnrýni á mótinu
Eins og fjallað hefur verið um þá er valið á Elfath nokkuð umdeilt, þar sem hann hefur hlotið talsverða gagnrýni á mótinu. Hann hefur veifað gula spjaldinu átta sinnum og rauða spjaldinu einu sinni í þremur leikjum sem hann hefur dæmt; Holland 2-2 Japan, Spánn 1-0 Úrúgvæ og Noregur 2-1 Brasilía.

Spænskir fjölmiðlar gagnrýndu hann eftir leik Spánar og Úrúgvæ fyrir að hafa ekki góða stjórn á leiknum og leyfa úrúgvæska liðinu að komast upp með of mikið. Í leik Noregs og Brasilíu fékk hann gagnrýni fyrir að þurfa að notast við VAR þegar Brasilía fékk víti eftir brot Kristoffer Ajer. Hann hefði átt að sjá brotið án þess að þurfa að vera sendur í skjáinn.
Elfath að störfum á HM.

Elfath að störfum á HM.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.