Fotbolti.net
14.07.26 - 14:48
Innkastið

Segir stórskrítið að Tryggvi hafi borið fyrirliðabandið

Tryggvi hefur verið varafyrirliði Vals.

Tryggvi hefur verið varafyrirliði Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Tryggvi Hrafn Haraldsson var fyrirliði Vals gegn FH á sunnudag í fjarveru Hólmars Arnar Eyjólfssonar.

Í Innkastinu var sett spurningamerki við það að Tryggvi hafi borið bandið nokkrum dögum eftir að greint hafi verið frá því að hann væri að yfirgefa félagið og ganga til liðs við ÍA.
Tryggvi staðfestir að hann fari í ÍA
TENGT EFNI

Tryggvi staðfestir að hann fari í ÍA

Í viðtali eftir leik staðfesti Tryggvi að hann væri að fara til ÍA og sagði það á milli félaganna hvort hann gengi til liðs við Skagamenn í glugganum eða eftir tímabil.

„Það er stórskrítið að leikmaður sem er búinn að semja við annað lið, búinn að velja sér næsta vinnuveitanda, sé að leiða liðið út,“ sagði Baldvin Már Borgarsson í Innkastinu.

Þeir Frederik Schram, Samúel Kári, Birkir Heimisson og Jónatan Ingi voru nefndir sem valkostir til að bera bandið í stað Tryggva.

Á leið til ÍA.

Á leið til ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.