Gyrðir hugsar sér til hreyfings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (1999) gæti samkvæmt heimildum Fótbolta.net farið frá KR í glugganum.
Gyrðir er uppalinn KR-ingur, fjölhæfur leikmaður, sem hefur komið við sögu í sex deildarleikjum og einum bikarleik í sumar.
Gyrðir vill spila meira en hann hefur einungis byrjað tvo leiki á tímabilinu. Á síðasta tímabili byrjaði hann níu leiki í deildinni og kom fimm sinnum inn á.

Gyrðir steig sín fyrstu skref í meistaraflokki hjá Leikni og eftir tímabilið 2022 fór hann í FH.
Þar gerði hann vel, sérstaklega í því að skora eftir að hafa komið inn á sem varamaður tímabilið 2023, og var í sumarglugganum 2024 svo keyptur til uppeldisfélagsins.