
Byrjunarlið Víkinga gegn Györ: Tvær breytingar frá fyrri leiknum

Nikolaj leiðir línu Víkinga í Ungverjalandi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj leiðir línu Víkinga í Ungverjalandi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar leika síðari leik sinn gegn Györ frá Ungverjalandi nú klukkan 17 í einvígi liðanna í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Víkingur leiðir einvígið 1-0 eftir sigur á heimavelli fyrir viku þar sem Nikolaj Hansen gerði sigurmark liðsins í uppbótartíma. Sölvi Geir Ottesen þjálfari þeirra hefur opinberað byrjunarlið sitt fyrir þennan síðari leik liðanna.
Lestu um leikinn: ETO Györ 0 - 0 Víkingur R.
Tvær breytingar eru á byrjunarliði Víkinga frá fyrri leiknum fyrir viku. Hetja þeirra Nikolaj Hansen kemur inn í byrjunarliðið í stað Elíasar Más Ómarssonar sem varð fyrir því óláni að slíta krossband í fyrri leiknum. Þá Aron Elís Þrándarson sér sæti á bekknum og kemur Tarik Ibrahimagic á miðju liðsins í hans stað.
Byrjunarlið Víkinga
47. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
4. Oliver Ekroth (f)
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
25. Valdimar Þór Ingimundarson
Byrjunarlið Víkinga
47. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
4. Oliver Ekroth (f)
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
25. Valdimar Þór Ingimundarson




