Sjáðu mörkin í Kópavogi og mistökin hræðilegu sem bitnuðu á Keflavík

Mudrazija var langt frá því að vera rangstæður.

Mynd: Skjáskot

Arnar Þór Stefánsson dómari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mudrazija var langt frá því að vera rangstæður.

Mynd: Skjáskot
Breiðablik vann 2-1 sigur á Keflavík í lokaumferð 14. umferð Bestu deildarinnar í gær. Keflavík skoraði fyrsta mark leiksins og hefði átt að komast tveimur mörkum yfir fyrir hálfleik en varð fyrir barðinu á dómaramistökum.
Aðstoðardómarinn Kristján Már Ólafs flaggaði ranglega rangstöðu þegar Marin Mudrazija kom boltanum í netið.
„Þeir skora löglegasta mark sem ég hef séð í langan tíma. Gæinn sem var dæmdur rangstæður var svona einum og hálfum metra frá því að vera rangstæður," segir Valur Gunnarsson, sérfræðingur Fótbolta.net, um dóminn.
„Keflvíkingar geta verið hundfúlir með ákvarðanir dómaranna," segir Elvar Geir Magnússon og talar um hræðileg mistök.

TENGT EFNI
Haraldur Freyr: Við skorum annað mark sem er löglegt
Breiðablik skoraði tvívegis eftir hlé en rétt fyrir lokaflaut kom Eiður Orri Ragnarsson boltanum í netið hinumegin. Arnar Þór Stefánsson dómari taldi Eið hafa brotið á Kristni Jónssyni í aðdragandanum.
„Þetta er aldrei brot, dauðafæri sem er ranglega tekið af Keflavík á 95. mínútu," segir Valur en þess má geta að dómarateymið fékk aðeins 3 í einkunn í skýrslu Fótbolta.net eftir leikinn.
Hér að neðan má sjá það helsta úr leiknum:
Breiðablik 2 - 1 Keflavík
0-1 Alpha Conteh ('24 )
1-1 Jónatan Guðni Arnarsson ('57 )
2-1 Kristinn Jónsson ('89 )