Fotbolti.net
14.07.26 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Viðræðum Man City við Bouaddi miðar vel

Viðræðum Man City við Bouaddi miðar vel
Canon

Mynd: EPA

Enska stórveldið Manchester City er í góðri stöðu í kapphlaupinu um eitt eftirsóttasta ungstirni heimsfótboltans um þessar mundir, Ayyoub Bouaddi.
Ungstirni vikunnar - Margir hefðu líklega misst hausinn
TENGT EFNI

Ungstirni vikunnar - Margir hefðu líklega misst hausinn

Viðræður Man City við umboðsteymi Bouaddi hafa gengið vel og mun félagið að öllum líkindum leggja fram kauptilboð á næstu dögum.

Bouaddi er 18 ára miðjumaður Lille, þar sem hann er samherji Hákons Arnars Haraldssonar, en er eftirsóttur af stærstu fótboltafélögum veraldar.

Hann er mikilvægur hlekkur í byrjunarliði Lille þrátt fyrir ungan aldur og er City tilbúið að lána leikmanninn aftur til uppeldisfélagsins ef þeim tekst að festa kaup á honum.

Bouaddi var mikilvægur hlekkur upp unglingalandslið Frakklands en kaus að spila fyrir A-landslið Marokkó þegar tækifærið gafst. Hann er búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti í sterku liði Marokkó og hjálpaði liðinu að komast í 8-liða úrslit á HM.

Bouaddi er varnarsinnaður miðjumaður og hefur meðal annars verið orðaður við Real Madrid, Arsenal og Liverpool auk Man City.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Viðræðum Man City við Bouaddi miðar vel
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.