Rúnar Páll: Hefði getað stórslasað Hilmar Árna
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

„Mér fannst þetta rauða spjald alveg pjúra rautt spjald. Hann hefði getað stórslasað Hilmar Árna,\" sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir 1-1 jafntefli gegn KA á Akureyri í kvöld. „Þetta var gróf tækling, hann hefði getað stórslasað Hilmar Árna,\" sagði Rúnar.
Túfa, þjálfari KA, var ekki sáttur með Erlend Eiríksson í kvöld og lét vita af óánægju sinni í viðtali eftir leikinn.

Rúnar var spurður út í dómgæsluna.
„Eru ekki allir að gera sitt besta? Hvort sem það eru leikmenn, þjálfarar eða dómarar. Ég veit það ekki, sennilega var hann ágætur,\" sagði Rúnar spurður út í Erlend.
Stjarnan náði að jafna þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og Rúnar virðir því þetta stig.
„Ég er hrikalega ánægður að við skyldum ná að jafna leikinn og fá eitt stig hérna.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.