Fotbolti.net
14.08.26 - 21:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alvarez bað liðsfélagana afsökunar - Fer ekki til Barcelona

Alvarez bað liðsfélagana afsökunar - Fer ekki til Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Julian Alvarez hefur verið sterklega orðaður við Barcelona í sumar en það er útlit fyrir að hann sé ekki á leið til félagsins frá Atletico Madrid.

Alvarez talaði opinskátt um áhuga Barcelona og sagði m.a. að það væri best fyrir alla viðkomandi aðila að hann skildi yfirgefa félagið.
Martin Talavera hjá Cadena SER segir frá því að hann hafi beðið liðsfélaga sína hjá Atletico afsökunnar á hegðun sinni.

Fernando Hidalgo, umboðsmaður Alvarez, reyndi hvað hann gat að koma honum til Barcelona en hann var í viðræðum við Deco, yfirmann fótboltamála hjá Barcelona. Stjórn Atletico stóð hins vegar fast á sínu og ætlar ekki að selja hann.

Hann er byrjaður að æfa hjá Atletico og undirbýr sig fyrir tímabilið á Spáni með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.