Fotbolti.net
14.08.26 - 09:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arsenal í viðræðum um annan varnarmann enska landsliðsins

Arsenal í viðræðum um annan varnarmann enska landsliðsins
Canon

Mynd: EPA

Arsenal er í viðræðum við Bayer Leverkusen um möguleg kaup á Jarell Quansah. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vill bæta við varnarmanni í hópinn og sér Quansah sem góða viðbót, þar sem hann getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður. Fyrr í sumar var sagt frá áhuga Arsenal á Ezri Konsa sem tikkar í sömu box.

Það er Sky Sports sem greinir frá. Quansah er mættur til Leverkusen eftir sumarfrí en þar á undan tók hann þátt í þremur leikjum með enska landsliðinu á HM.
Hann var keyptur til Leverkusen frá uppeldisfélaginu Liverpool og lék 44 leiki á síðasta tímabili.

Fram kemur að Leverkusen vilji ekki selja Quansah, félagið er ánægt með 23 ára varnarmanninn og hversu vel hann náði að aðlagast nýju umhverfi.

Leverkusen greiddi 30 milljónir punda fyrir hann síðasta sumar og þykir líklegt að Arsenal yrði að greiða talsvert meira fyrir hann í sumar. Hann á enn fjögur ár eftir af samningi sínum.

Liverpool var með endurkaupsmöguleika á Quansah en fyrr í sumar hefur verið fjallað um að félagið ætli sér ekki að nýta hann.
Arsenal í viðræðum um annan varnarmann enska landsliðsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.