Skoraði langþráð mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum - „Fögnuðurinn inni í klefa eftir því"

Byrjaði sinn fyrsta leik með Grindavík í gær.

Mynd: Grindavík

Fæddur 2002 og lék sína fyrstu leiki með ÍBV 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjaði fyrstu þrjá leikina í Bestu en fór svo á bekkinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjá Grindavík hittir Arnar Breki fyrir Hjörvar Daði Arnarsson en þeir voru liðsfélagar hjá ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjaði sinn fyrsta leik með Grindavík í gær.

Mynd: Grindavík
„Það var langt síðan ég skoraði síðast og sigurinn var sætur eftir mikil erfiði, og fögnuðurinn inni í klefa eftir því. Það er kannski ekki hægt að fagna þessu almennilega þar sem það er leikur á mánudaginn."
Sóknarmaðurinn var að skora sitt fyrst mark frá því 30. júní 2024. Þá skoraði hann í öruggum sigri ÍBV á Keflavík í Bestu deildinni. Markið í gær kom eftir sendingu frá Sindra Þór Guðmundssyni á 19. mínútu leiksins.
Arnar Breki, sem er 24 ára Eyjamaður, kom til Grindavíkur fyrir um tveimur vikum og var leikurinn í gær hans annar leikur með liðinu, og fyrsti byrjunarliðsleikurinn.
Hann kom á láni til Grindavíkur frá ÍBV út tímabilið.
„Það er bara gott að vera kominn hingað, þetta er frábær hópur og það er gaman að vera farinn að sila meiri fótbolta. Mig langaði að prófa þetta eftir lítinn spiltíma hjá ÍBV og fékk grænt ljós hjá öllum að byrja að þreifa fyrir mér sjálfur í leit að nýju liði. Jújú, það voru aðrir kostir líka í boði en ég er ánægður með að vera spila með Grindavík."
Langt frá föstu sæti í Eyjaliðinu
Hann byrjaði fyrstu þrjá leikina í Bestu deildinni en svo fækkaði mínútunum hratt og var hann á bekknum næstu þrettán leikina og kom tólf sinnum inn á.
Varstu svekktur með hlutverkið í Eyjum?
„Já, það er hægt að segja að það hafa verið nokkur tímabil í röð þar sem ég er ekki með fast sæti í liðinu og fannst ég aldrei hafa verið fjær því en á þessu tímabili."
Þekkir að vera í fallbaráttu
Fjórar umferðir eru eftir af deildinni og Grindavík er þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Hvernig sér lokakaflinn við þér í deildinni?
„Ég er ekki hræddur við fallbaráttuna enda oft verið í þannig baráttu, en ég trúi því að við verðum ekki í henni mikið lengur."
Vill koma á skriði inn í næsta tímabil með ÍBV
Arnar Breki er samningsbundinn ÍBV út tímabilið 2028. Hvernig sér þín framtíð við þér, snýrðu aftur í ÍBV eftir tímabilið?
„Ég bað um að fá að fara á lán í þeim tilgangi að verða skarpari með ÍBV á næsta tímabili og fá að gera mistök inni á vellinum til að læra af. En svo er aldrei að vita hvað gerist," segir Eyjamaðurinn að lokum.
Síðustu fjórir leikir Grindavíkur
mánudagur 17. ágúst
18:00 Grindavík-Grótta (Stakkavíkurvöllur)
laugardagur 22. ágúst
14:00 Fylkir-Grindavík (tekk VÖLLURINN)
laugardagur 29. ágúst
14:00 Grindavík-HK (Stakkavíkurvöllur)
laugardagur 5. september
14:00 Ægir-Grindavík (GeoSalmo völlurinn)

Fæddur 2002 og lék sína fyrstu leiki með ÍBV 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjaði fyrstu þrjá leikina í Bestu en fór svo á bekkinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjá Grindavík hittir Arnar Breki fyrir Hjörvar Daði Arnarsson en þeir voru liðsfélagar hjá ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 17 | +22 | 35 |
| 2 | Þróttur R. | 18 | +19 | 34 |
| 3 | Fylkir | 18 | +9 | 34 |
| 4 | Njarðvík | 18 | +8 | 32 |
| 5 | HK | 18 | +9 | 31 |
| 6 | Grótta | 17 | +1 | 26 |
| 7 | Vestri | 18 | -9 | 24 |
| 8 | Leiknir R. | 18 | -3 | 22 |
| 9 | Grindavík | 18 | -6 | 20 |
| 10 | ÍR | 18 | -9 | 19 |
| 11 | Völsungur | 18 | -14 | 17 |
| 12 | Ægir | 18 | -27 | 8 |
