Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
banner
   fös 14. september 2018 20:31
Orri Rafn Sigurðarson
Kjartan Stefáns: Verið að setja í eitt gott partý í hverfinu
Kjartan á hliðarlínunni með lúffurnar.
Kjartan á hliðarlínunni með lúffurnar.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir varð í kvöld Inkasso meistari kvenna og fögnuðu vel að leik loknum eftir 3-1 sigur gegn Fjölni í loka umferðinni. Kjartan Stefánsson þjálfari Fylkis var ða vonum mjög ánægður eftir leik.

„Ég er hrikalega ánægður og stoltur af stelpunum. Þetta var erfiður leikur en skemmtilegur." Sagði Kjartan

Lestu um leikinn: Fylkir 3 -  1 Fjölnir

Varnarleikur Fylkis hefur verið frábær í sumar og fékk lið aðeins á sig 9 mörk í allt sumar.

„Ég get ekki verið annað en verið annað en ánægður með það við fengum á okkur 9 mörk sem er jafnmikið og Stjarnan setti á okkur í bikar. Ég ætlaði að reyna ná bara átta en svona gerist þetta með smá klaufagangi í vörninni hjá okkur en virkilega sáttur með heildina."

Hvað tekur við hjá Fylki fyrir næsta tímabil munu þær reyna sækja marga leikmenn og þá hvernig leikmenn?

„Við þurfum að setjast yfir marga hluti og okkar lið og skoða stöðuna við erum með stóran hóp. Ég ætla ekkert að ljúga því að við höfum áhuga á íslenskum leikmönnum sem vilja gerast Fylkismenn það er klárt og ég er mjög ánægður með stelpurnar sem ég er með fyrir en eins og sést á okkur og á leiksskýrslum að við erum með margar í burtu og erfitt að vera með margar stelpur í Bandaríkjunum og hugsa til þess að vera í Pepsí að ári og vera þá með 6-8 leikmenn í Bandaríkjunum það er svolitítið stórt."

Í lok leiks fékk Tinna Bjarndís svokallað heiðurs inná skiptingu þar sem hún var að spila sinn síðasta leik fyrir Fylki en hún spilaði 272 leiki fyrir Árbæjar liðið

„Það var mikill missir að missa Tinnu í erfið meiðsli í upphafi tímabils og við fundum það alveg að það fór mikill karakter og stjórnandi úr liðinu og það tók okkur þá smá tíma að finna taktinn aftast en það var rosalega gaman að setja hana inn á í lokinn því það er gull að eiga leikmenn sem spila alla sína leiki á sama stað og hún er með Fylkis hjartað á réttum stað."

Hvernig ætlar Kjartan að fagna titilinum?

„Það er bara partý á eftir það er klárt það er verið að setja í eitt gott hérna í hverfinu! Ég er búin að vera þrisvar í 1.deild en fyrsta skipti í svona inkasso deild en hef farið þrisvar upp hvert hefur verið skemmtilegt en þetta móment fyrir framan allt þetta fólk var stórt og mikið fyrir mig persónulega ég fer ekki leynt með það ég er Fylkis maður."

Kjartan er ætíð með góða vetrar hanska sem að konan hans bjó til fyrir hann og hafa margir velt því fyrir sér hvers vegna hann sé alltaf með þá hvort þeir séu happa eða bara þæginlegir?

„Ég kannski klæði mig alltof vel það er galli við að vera yngri flokka þjálfari maður er svolítið að ala upp alla í kringum sig og þá fer maður að haga ser eins og maður segir við börninn. Þeir eru líka alltaf að hlægja að mér settið sem er með mér strákarnir bara hey viltu ekki fara í skíðagalla en reyndi að rökstyðja það með því að það var skuggi í dag."Sagði Kjartan að lokum

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner