mán 14. september 2020 18:00
Aksentije Milisic
Bale vill ekki fara á láni frá Real
Mynd: Getty Images
Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, hefur engan áhuga á því að fara frá liðinu á láni. Real heldur áfram að leita leiða til þess að losna við Bale en það hefur gengið illa.

Hinn 31 árs gamli Bale vill komast burt frá Real eftir að Zinedine Zidane, stjóri liðsins, setti hann á bekkinn og spilaði honum ekkert eftir að tímabilið fór aftur í gang eftir stopp.

Stuðningsmenn Real eru löngu orðnir þreyttir á leikmanninum og það hefur reglulega verið baulað mikið á Bale þegar liðið hefur spilað á heimavelli.

Bale var nálægt því að fara til Kína og ganga til liðs við Jiangsu Suning fyrir síðasta tímabil. Hann var búinn að ná samkomulagi við félagið en liðin tvö náðu hins vegar ekki að semja.

Manchester United hefur áhuga á Bale en liðið er ekki tilbúið til þess að borga sú upphæð sem Real Madrid vill fá fyrir leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner