14.09.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho um Yamal: No comment

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
José Mourinho þjálfari Real Madrid fór víðan völl á fréttamannafundi fyrir leik liðsins á útivelli gegn Elche sem er í gangi þessa stundina.

TENGT EFNI
Yamal um Dembélé: Er það ekki vinur Kylian?
Mourinho ræddi meðal annars um Vinícius Júnior, Yan Diomande, Arda Güler og Lamine Yamal á fundinum.
„Besta útgáfan af Vinícius mun sjást um leið og hann byrjar að skora mörk. Hann leggur mikla vinnu á sig fyrir liðið og er duglegur að leggja upp. Ég man eftir Vini Jr. sem henti mér úr Meistaradeildinni í fyrra þegar ég var hjá Benfica," sagði Mourinho, en Vinícius er með eitt mark og þrjár stoðsendingar í fimm fyrstu deildarleikjum tímabilsins.
Real er í öðru sæti spænsku deildarinnar, með tólf stig eftir fimm umferðir - þremur stigum á eftir ríkjandi meisturum Barcelona sem eiga fullt hús stiga.
„Yan Diomande hefur hæfileika en hér er rosalega mikil samkeppni um byrjunarliðssæti. Ef hann væri hjá öðru liði með slakari samherjum þá fengi hann eflaust að spila 90 mínútur í hverjum leik. Við erum með rosalega sterkan leikmannahóp og það er mjög erfitt að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu.
„Arda Güler er mjög mikilvægur fyrir okkur. Hann er gæðamikill og stjórnar spilinu frábærlega. Hann er ótrúlega efnilegur og ég er mjög hrifinn af honum. Hann er alvöru topp leikmaður."
Mourinho var að lokum spurður út í orð Yamal sem vonast til að vinna Ballon d'Or eftir að hafa orðið Spánarmeistari með Barcelona og heimsmeistari með Spáni.
„Ég ber virðingu fyrir öllum skoðunum en ég kýs að tjá mig ekki um þetta mál. No comment."

Yamal: Allir vita að ég og Mbappe erum bestir

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA