Fotbolti.net
14.10.20 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Verðmiðinn á Todd Cantwell of hár fyrir Leeds

Todd Cantwell.

Todd Cantwell.

Canon

Mynd: Getty Images

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, vill bæta sóknarsinnuðum miðjumanni í leikmannahóp sinn.

Félagið hefur áhuga á að fá Todd Cantwell frá Norwich en Championship-félagið vill að minnsta kosti fá 20 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Það er of hár verðmiði fyrir Leeds sem hefur eytt 100 milljónum punda í leikmannaglugganum.
Victor Orta, yfirmaður fótboltamála hjá Leeds, mun þó halda áfram að fylgjast með gangi mála hjá Cantwell.

Cantwell er 22 ára og missti sæti sitt í liði Norwich þar sem stjórinn Daniel Farke var ósáttur við viðhorf hans.
Verðmiðinn á Todd Cantwell of hár fyrir Leeds
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.