Fotbolti.net
14.10.26 - 21:10
Brynjar Ingi Erluson

Championship: West Ham valtaði yfir níu leikmenn Lincoln

Tomas Soucek skoraði tvö í 6-0 sigri West Ham

Tomas Soucek skoraði tvö í 6-0 sigri West Ham

Canon

Mynd: EPA

West Ham United slátraði nýliðum Lincoln City, 6-0, í ensku B-deildinni í kvöld.
Það fór allt á versta veg hjá Lincoln sem missti tvo leikmenn af velli á fyrstu 23 mínútunum.

Tom Hamer fékk að líta rauða spjaldið strax á þriðju mínútu og aðeins tuttugu mínútum síðar var Conor McGrandles einnig rekinn af velli. Heimamenn voru því orðnir tveimur færri áður en fyrri hálfleikur var hálfnaður.

Lincoln náði þó að halda aftur af West Ham í rúmar tuttugu mínútur með aðeins níu menn inni á vellinum, en þá braut Kostas Mavropanos loksins ísinn fyrir Hamrana.

Í síðari hálfleik var hins vegar aðeins eitt lið á vellinum og West Ham gekk gjörsamlega frá heimamönnum. Edvin Austbo og Jarrod Bowen skoruðu með aðeins tveggja mínútna millibili áður en Pablo bætti við fjórða markinu á 75. mínútu.

Tékkinn Tomas Soucek rak svo smiðshöggið á stórsigurinn með tveimur mörkum á tíu mínútna kafla undir lokin og niðurstaðan 6-0 sigur West Ham.

Hamrarnir eru í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig á meðan Lincoln situr í 18. sæti með 11 stig.

Í öðrum leikjum kvöldsins marði Southampton 1-0 sigur á Norwich, Portsmouth hafði betur gegn Sheffield United, 3-2, og QPR vann þægilegan 4-1 sigur á Derby County.

Úrslit og markaskorarar:

Lincoln City 0 - 6 West Ham
0-1 Konstantinos Mavropanos ('45 )
0-2 Edvin Austbo ('48 )
0-3 Jarrod Bowen ('50 )
0-4 Pablo ('75 )
0-5 Tomas Soucek ('79 )
0-6 Tomas Soucek ('89 )
Rautt spjald: ,Tom Hamer, Lincoln City ('3)Conor McGrandles, Lincoln City ('23)

Norwich 0 - 1 Southampton
0-1 Kuryu Matsuki ('54 )

Portsmouth 3 - 2 Sheffield Utd
1-0 Zak Swanson ('41 )
2-0 Adrian Segecic ('54 )
2-1 Japhet Tanganga ('59 )
2-2 Thomas Cannon ('67 )
3-2 Ebou Adams ('89 )
Rautt spjald: Hamza Choudhury, Sheffield Utd ('44)

QPR 4 - 1 Derby County
1-0 Alfie Lloyd ('18 )
2-0 Nicolas Madsen ('22 , víti)
3-0 Harvey Vale ('45 )
4-0 Paul Smyth ('68 )
4-1 Lars-Jorgen Salvesen ('90 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough14+1128
2Wolves14+827
3Birmingham14+1326
4Stoke City14+526
5Swansea14+526
6West Brom14+525
7Southampton14+1524
8West Ham14+1523
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City14-318
16Wrexham14-217
17Bolton14-717
18Cardiff City14-115
19Lincoln City14-1015
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County14-187
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.