Fotbolti.net
14.10.26 - 23:24
Brynjar Ingi Erluson

Hátt fall hjá Sane - „Hann ætti að skammast sín“

Leroy Sane hefur fengið mikla gagnrýni hjá Galatasaray

Leroy Sane hefur fengið mikla gagnrýni hjá Galatasaray

Canon

Mynd: EPA

Þýski vængmaðurinn Leroy Sane var á sínum tíma í hópi bestu leikmanna heims í sinni stöðu þegar hann lék með Manchester City og síðar Bayern München, en þau ár virðast vera að baki þótt hann spili nú með tyrkneska stórliðinu Galatasaray.
Sane átti erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð þrátt fyrir að Galatasaray hafi orðið tyrkneskur meistari og byrjunin á þessu tímabili hefur verið enn verri. Þjóðverjinn hefur ekki komið að einu einasta marki í fyrstu átta leikjunum og er gagnrýnin farin að verða ansi hörð.

Hann kom inn af bekknum í 4-1 tapinu gegn Barcelona í Meistaradeildinni í gær en náði lítið að láta að sér kveða. Sinan Engin, sem lék áður með Besiktas, var allt annað en sáttur við frammistöðu hans.

„Leroy Sane ætti að skammast sín! Yunus Akgün er að spila á meðan Sane situr bara á bekknum. Við erum að tala um heimsklassaleikmann frá Þýskalandi og hann er á bekknum. Hvernig getur það verið? Þegar þú tapar svona á heimavelli er ekkert skrýtið að stuðningsmennirnir verði brjálaðir,“ sagði Engin.

Tümer Metin, sem lék með Besiktas, Fenerbahce og tyrkneska landsliðinu, tók enn dýpra í árinni og sagðist hafa látið Sane heyra það ef þeir hefðu verið liðsfélagar.

„Ef ég væri liðsfélagi Sane myndi ég taka hann kverkataki og spyrja: ‚Hefurðu einhvern áhuga á að hjálpa okkur? Ég er gjörsamlega búinn á því að hlaupa fyrir þig!“ sagði Metin.

Sane tjáði sig sjálfur eftir leikinn og sagðist leggja hart að sér á hverjum degi til að komast aftur í sitt besta form.

„Við stöndum saman í gegnum súrt og sætt. Ég legg hart að mér á hverjum degi til að komast aftur í mitt besta form og gefa ykkur það sem þið eigið skilið. Takk fyrir stuðninginn í gær og allt frá því ég kom hingað. Við ætlum að komast í gegnum þetta saman,“ sagði Sane.
Hátt fall hjá Sane - „Hann ætti að skammast sín“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.